Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Fótspor í sandinum...

Það er merkilegt hvernig að sálin getur fundið sér samastað á mörgum stöðum í veröldinni.

Ég er nú kannski ekki sá víðförlasti sem að til er, en hef þó ferðast minn skerf og séð einn eða tvo hluti.

Ég hef einnig búið annars staðar og upplifað framandi hluti. Á mörgum þessum stöðum hefur mér liðið einstaklega vel og fundist að hér "ætti ég heima" eða að hér "gæti ég  búið", þó svo að ég hafi bara komið þangað í stutta stund.

Af einhverjum völdum hefur þó að loknum þessum tímum verið gott að koma heim, og eftir því sem að aldurinn hefur færst yfir, verð ég sífellt meira stoltari af því að vera Íslendingur og búa hér. Ég verð meira og meira ástfanginn af landinu, þrátt fyrir margslungna harðneskju þess. Mest þykir mér vænt um frelsið hérna, sem að þótt að manni finnist það nú ekki alltaf, er ótrúlega mikið.

Eitt sem að ég hef fundið fyrir, eða öllu heldur áttað mig  á í seinni tíð, er að það er ekki umhverfið, byggingarnar, loftslagið eða þægindin sem að ráða því hvað manni finnst um þann stað sem að maður er á, heldur er það fólkið.

Og þrátt fyrir hvað ég get bölvað okkur mikið, þá er fólkið hér alveg einstakt!

Sérstaklega þú! 


14-2...aftur!

Það má líkja stöðunni í baráttu lögreglunar við fíkniefnasala við tap Íslendinga á móti Dönum í fótbolta, 14-2. Nema hvað að hætt er á að staðan versni enn meira til muna og lögreglan tapi með enn meiri mun!

Hvenær ætlar Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason að fara að viðurkenna að lögreglan er ekki einungis mannfá, heldur líka illa þjálfuð og það sem verra er, illa liðinn þar sem að hún hefur enga stjórn á ástandinu í Reykjavík, og getur engan veginn tryggt öryggi borgaranna.

Er það bara ég, eða er eitthvað skrýtið við að tveir menn með hníf og hlaðna haglabyssu, fái að ganga út að lokinni yfirheyrslu ? 


mbl.is Tveir menn handteknir á Hverfisgötu með hlaðna haglabyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að taka í höndina á Djöflinum.

Þótt að ég hafi nú ekki afrekað að lesa eins mikið og ég vildi um ævina, þá er ein bók sem að ég las ekki fyrir löngu sem að skildi mikið eftir sig hjá mér.

Bókin heitir "Shake hands with the Devil: The failure of humanity in Rwanda" eftir Kanadíska hershöfðingjan Romeo Dallaire. Romeo var yfirmaður UNAMIR á tímum þjóðamorðanna, og þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir og skýrslur um hvað væri í uppsiglingu og hvað væri að gerast, brást alþjóðasamfélagið, og þá sérstaklega SÞ, Belgar, Frakkar og BNA ekki við.

Á einungis 100 dögum voru myrt um 800.000-1.000.000 manns. Menn konur og börn.

Flestir voru myrtir með Kylfum og sveðjum.

Þegar að mest gekk á, hrönnuðust líkin það hratt upp að vegir voru orðnir ófærir og árnar yfirfullar af rotnandi líkömum.

Ef að þér langar að kynnast af eigin raun hversu illgjörn og hræðileg mannskepnan getur orðið, þá er þessi bók svo sannarlega skyldulestur. Ég held að fáir geti sagt söguna jafn áhrifamikið og Dallaire, þar sem að hann stóð hjálparlaus og algerlega ófær um að stoppa þetta, mitt í blóðbaðinu. 


Virkilega ?

Það verður nú að taka hattinn ofan fyrir þessum manni! Að hafa náð einn og óstuddur fram til þessa mikla leyndarmáls sem að það er að Bandaríkjastjórn vilji ráðast á Íran.

Það er sorglegt að sjá að ríkisstjórn sem að rétt nær að slefa upp í stuðning 1/3 af þjóð sinni geti hagað sér svona. Bandaríkin hafa ekki farið aftur á við í tíð George Bush, þau hafa einfaldlega breyst í það sem að hann telur sig vera að berjast við.

Kalt, ofstækisfullt fasistaríki!


mbl.is Segir Bandaríkjastjórn vilja gera árás á Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göfugur málstaður!

Allir ættu að taka sér tíma til að skrifa eitt lítið e-mail til landlæknisembættisins og leggja henni Heiðu lið í baráttu sinni gegn Flunitrezapam (stafs?)

Fyrst að hægt var að taka Rohypnol af markaði, af hverju ekki þetta ? Þetta er jú sama lyfið! 

http://skessa.blog.is/blog/skessa/entry/293635/ 

Spakmælið segir að þögn sé sama og samþykki, þannig að nú verður gaman að sjá hvort að fólk vilji ekki standa upp og sýna að það sé ekki samþykkt því að nauðgarar geti komist yfir verkfæri til að framkvæma svona verknaði! 


Eftirsóknarverður lottó-vinningur það!

Mikið væri nú roslega gaman að vinna í lottó-inu!

Svo er nú alveg spurning hversu gaman það væri að vinna 10 milljónir í lottó, ef að maður þarf síðan að eyða 30-40 milljónum til að geta notað lottó vinninginn ???

"Things that make you go hmmm..."


mbl.is Ísland vann í lottóinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pleh!

Það er sko bloggmorgun hjá mér!

Sjálfur hef ég eytt hlutfallslega miklum tíma ævi minnar hjá Möggu frænku, og aldrei nokkurn tímann fann ég til samúðar með Kristjaníu-búum!

Ekki það að Kristjanía sé slæmur staður, eða fólkið sé slæmt, heldur var það vegna þess að fólk sem að þarna bjó, "starfaði" og vandi komur sínar bar enga virðingu fyrir heiminum utan Kristjaníu.

Besta lýsingin er kannski barnalegur anarkismi!

Svo er náttúrulega ekkert launungamál að þarna þreifst vel og lengi blómleg og opin eyturlyfjasala. Eins "afslöppuð" og "friðsæl" hún var, þá vissu allir að baklandsmenn hennar voru fyrirmyndarborgararnir í Hells Angels. Óþekkir strákar þar!

Vandamálið liggur kannski í að Kristjanía sem slík, er ekkert voðalega merkileg nema að maður sjái hana í hassvímu, eða að það liggi yfir henni ský af hassrreykingum! Og einhversstaðar í fjarska ómi "Let the sunshine in....".

Þó aðallega í hausnum á þér!


mbl.is Samkomulag gert um framtíð Kristjaníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vogarskálar réttlætisins ?

Engin refsing er hærri dauðdómi. Sitt sýnist hverjum um ágæti hans, og er einfalt að mæla með og á móti honum.

Þegar að maður hinsvegar les um svona viðbjóð fara einnig hörðustu andstæðingar hans að hugsa sig um, eins og kannski sést á nokkrum bloggfærslum um þessa frétt.

Ég hef aldrei lagt dul á það að ég er fylgismaður dauðrefsingar, en einungis til handa skrímslum sem þessum! Mér finnst persónulega að þegar að fólk hefur framkvæmt svona óhugnað hefur það sjálft skrifað undir dauðadóminn. Og gildir þá einu hvort um geðveiki, greindarskort eða aðrar "útskýringar" er að ræða!

Ég segi þetta ekki vegna þess að ég er illa innrættur eða að ég trúi á ofbeldi, þvert á móti! Ég segi það vegna þess að ég er faðir, og aldrei nokkurn tíma myndi ég lifa í rónni ef að einhver myndi gera nokkuð í bara minnsta námunda við mín börn!


mbl.is Dæmdur til dauða fyrir að nauðga og myrða níu ára stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blast from the past!

Var að fletta í gegnum gamla (niðurlagða) bloggið mitt...tíhí

Komst að því að ég er ansi pirraður einstaklingur í umferðinni! Ákvað því að grafa upp eina og eina færslu af því, þar sem að ég er að hella úr skálum reyði minnar. Hér kemur sú fyrsta:

Í þessu guðsvolaða en yndislega landi er fátt sem fer meira í taugarnar á mér en umferðin! Ekki þunginn, því hann er því sem næst enginn, heldur hvernig við högum okkur í umferðinni. Að sjálfsögðu er hægt að tala um umferðarmenningu, því allt sem skapað er af mönnum flokkast undir menningu. Hún er hinsvegar svo slæm og tillitsemin enginn að 1/10 af því sem að maður sér væri yfirdrifið! Til hvers eru bílaframleiðendur að setja stefnuljós í bíla sem að eru á leið til Íslands? Það er engin not fyrir þau hér, þar sem að fæstir virðast vita hvaða tilgangi þau þjóna! Af hverju ekki bara að spara peninginn og setja eitthvað annað sniðugt í þessa bíla?

Virðing fyrir hraðatakmörkum er því sem næst enginn, og það að taka framúr er bara eitthvað sem að þú gerir á þann máta sem að þér hentar best! Hægri, vinstri eða í bland, any which way goes! Svo maður tali nú ekki um að "gefa séns". Hversu oft verð ég ekki vitni að því að bíll reynir að komast inn í stofnbraut frá aðrein, og þeir sem að eru að aka í stofnbrautinni annað hvort skifta ekki um akrein, eða gefa í til að hann komist nú ekki. Í öllum siðmenntuðum þjóðum er það nú bara sjálfsagt að bílar sem eru í stofnbraut hleypi fólk inn í, hvernig sem að þeir fara að því. Sérstaklegi í þungri umferð, lætur hver bíll einn komast inní. Semsagt tannhjólakerfi! Ekki flókið hjá flestum vestrænum þjóðum, en íslendingar...neiiiii! Ekki skalt þú fá að taka þessa auðu 5 metra fyrir framan mig!! Hverskonar illkvitni og kvikyndisskapur er þetta eiginlega?? Það er nú ekki eins og að þetta tefji stórkostlega fyrir manni, kannski um svona...tja..10 sekúndur! Vá hvað þessar 10 sekúndur eru mikilvægar?

Þetta efni er mér sérlega huglægt, sérstaklega eftir að hafa keyrt í velflestum löndum vestur-evrópu, og í bandaríkjum norður ameríku. Þið megið treysta á að ég rexi og pexi reglulega um þetta, og ég er ekki enn byrjaður á Umferðarstofu!!


Góðir hlutir...

Írar eru um margt merkilegt fólk. Einn af þeirra óumdeildu "hæfileikum" er að líta ekki á sorgina sem slæman hlut, heldur sem nýja byrjun. S.d. geta þeir sungið alla ástjarðarsöngvana með bros á vör, þótt svo að ansi fá lög sem að koma frá Írlandi fjalli um einhver gleðiefni. Oftar en ekki er verið að segja frá einhverju ömurlegu úr Írskri sögu, og þar er víst af nógu að taka!

Einnig finnst Írum ekkert sjálfsagðara en að fara á pöbbinn að lokinni jarðaför og hella sig skeldrukkna til að minnast viðkomandi sem að liggur undir mold.

Það er náttúrulega engum blöðum um það að fletta að Írar drekka...mikið!

Einn af þeirra helstu drykkjum er að sjálfsögðu Guinness, sem að er jafn samdauna Írskri menningu og blótsyrðin og viskíið.

Guinness er merkilegur drykkur og merkilegt fyrirtæki. S.d. eru þeir kostunaraðilar heimsmetabókarinnar. (Þá veistu hvaðan það Guinness er komið)

Þeir gera einning alveg bráðskemmtilegar sjónvarpsauglýsingar og fá þær oftar en ekki mikla athygli fyrir frumleika go sniðugheit. Þeim fylgir að sjálfsögðu alltaf einhver skemmtileg slagorð sem að maður man mjög auðveldlega eftir, og eru ósjaldan einföld orðatiltæki sem að allir nota í daglegu lífi.

Eitt þessara slagorða er: "Good things come to those who wait" eða "Góðir hlutir koma til þeirra sem að bíða" og er þarna verið að vísa til þess að maður verði að bíða eftir að Guinness-inn skiljist í glasinu, eða "setjist". Einfalt og þekkt, en áhrífaríkt.

Hvað orðatiltækið varðar...þá er það dagsatt, "Good things come to those who wait"

guinness_ad_image


Næsta síða »

Höfundur

Áddni
Áddni
Fulltrúi ómálefnalegrar umræðu og erindreki niðurrifsáróðurs  af illkvittnasta tagi!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.12.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband