Af sem áður var..."The Return Of The King" (?)

Eitt sinn var sá tími að sjálfstæðisflokkurinn gekk um og taldi sig vera málsvara frjálshyggjunar og verndara frelsis einstaklingsins.

Nú kveður hins vegar við annan tón, þegar að einn helsti forkólfur flokksins reynir hvað hann getur að smeigja sér inn stjórnmál aftur um bakdyrnar.

Davíð Oddson sem að allir töldu að hefði verið einlægur í yfirlýsingum sínum um að vera hættur stjórnmálum fer um mikinn og talar "þjóðstjórn", "þjóðnýtingu" og gerist svo kræfur að viðra þetta á ríkisstjórnarfundum.

Það getur kannski ekki talist óeðlilegt að æðsti maður seðlabankans komi sem gestur á ríkisstjórnarfund og geri grein fyrir því hvað bankinn ætli að aðhafast á síðustu og verstu tímum, en þessi furðulegu og vægast sagt stórskrýtnu viðhorf sem að hann viðrar á opinberum og óopinberum vettvangi vekja upp margar spurningar.

Flokkurinn sem að Davíð "rúlaði" með harðri hendi er margklofinn og nýjar fylkingar myndast á hverjum degi. Enginn ræður neitt við neitt og engin samstaða virðist vera eftir. Fylgishrun flokksins er best hægt að lýsa sem frjálsu falli (ekki ólíkt krónunni).

Kannski það sé þess vegna sem að Davíð sé svo um að "taka völdin" aftur ?

P.s. ég rakkst á ansi "skondinn" bloggara sem að heitir Gísli Freyr . Af skrifum hans að dæma myndi ég ætla að hann sé mjög "blár" og merkilegt nokk ritskoðar hann allt sem að ég kommenta hjá honum með því að eyða því út (?) Annars finnst mér skrif hans mjög "fyndin"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ritskoðun

Ómar Ingi, 3.10.2008 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Áddni
Áddni
Fulltrúi ómálefnalegrar umræðu og erindreki niðurrifsáróðurs  af illkvittnasta tagi!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband