Ferðalag...

Ég hef mikið velt því fyrir mér í lífi mínu hvort sé mikilvægara, ferðalagið eða áfangastaðurinn ?

Þetta er ein af þessum spurningum sem að maður brýtur heilann yfir. Ég er meira þeirrar skoðunar að ferðalagið sé mikilvægara, þótt að áfangastaðurinn sé ánægjulegur.

Ég hef nýferið hafið ferðalag sem að kemur til með að endast mér alla ævi, og aldrei hef ég hlakkað eins mikið til, og heldur hef ég aldrei upplifað aðra eins hamingju í ferðalagi!

Ég rakst á fleyga setningu úr kvikmynd einni sem að lýsir þessu mjög vel, og mér hefur alltaf þótt vænt um. (Enda leikarinn sem fór með hana einn af fremstu Shakespeare leikurum samtímans)

"Someone once told me that time was a predator that stalked us all our lives. I rather believe that time is a companion who goes with us on the journey and reminds us to cherish every moment, because it will never come again. What we leave behind is not as important as how we've lived. After all, we're only mortal. "

(Tíu stig ef þið getið bent á myndina:))

Takk fyrir að leyfa mér að fara í þetta ferðalag með þér! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Mjög falleg setningin úr kvikmyndinni.

Ég er sammála þér með að ferðalagið sjálft skipti mestu máli, enda vitum við aldrei hvaða áfangastað við komust á í lokin. Svo það er um að gera að njóta hvers augnabliks til hlítar.

Thelma Ásdísardóttir, 11.10.2007 kl. 20:58

2 Smámynd: Áddni

Þessi setning sat rosalega í mér  (og gerir enn) þar sem að viðkomandi leikari er með djúpa og fágaða rödd og fullkominn enskan hreim (hvernig enskan segi ég nú ekki). Svo hjálpar náttúrulega að skilaboðinn eru falleg.

Áddni, 13.10.2007 kl. 16:11

3 Smámynd: Ruth Ásdísardóttir

ég hlakka ótrúlega mikið til ferðalagsins sem í vændum er. Aldrei hélt ég að lífið gæti verið svona skemmtilegt!! :) Sé þig í kvöld babe.

Ruth Ásdísardóttir, 13.10.2007 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Áddni
Áddni
Fulltrúi ómálefnalegrar umræðu og erindreki niðurrifsáróðurs  af illkvittnasta tagi!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband