Fullkominn hræsni!

Mér finnst með ólíkindum hvað það eru mörg dæmi um tvískinnung og hræsni í lagalegu umhverfi þjóðfélagsins. Það má ekki auglýsa áfengi, en samt er það auglýst alls staðar með lítilli klausu falinni "léttbjór". Verstir eru vínbúðirnar (ÁTVR) sem að auglýsa s.d. "Ítalska Daga" og eru því sem næst undantekningalaust í helgarblöðunum með "kynningu" á vínum.

Innrás lögreglunar á pókermótið er gott dæmi um þetta. Hér er verið að fela sig á bakvið það að fjáráhættuspil sé ólöglegt á Íslandi í tekjuskyni. Mótshaldari hefur margsinnis gefið það út að ekki hafi verið tekið nokkuð gjald fyrir þáttöku, heldur einungis greitt í sameiginlegan vinningspott. Starfsaðferð lögreglunar er skínandi dæmi um hvernig lögreglan og dómsvaldið líta á sig. Skjóta fyrst, spyrja svo! Ekki liggur ljóst fyrir að lögreglan hafi verið í lagalegum rétti til að ráðast inn og stöðva mótið, og nokkuð víst er að erfitt verði fyrir þá er málið kemur fyrir dómara. Nema ef skyndilega að dómari fái móralskan komplex og líti á þetta með augum blinda mannsins! 

Það er gott og blessað að til sé lögreglan, en það er ekki gott og blessað að hún beiti valdi sínu ef að ekki hefur verið skorið úr ólögmæti athæfisins!

Ég vil nú líka benda á að löggjöf um fjáráhættuspil er jafngömul og úrelt og Tom Jones! Það er ósköp auðvelt fyrir landann að komast í allt það fjáráhættuspil sem að landinn vill komast í. Netið er gersamlega springa af spilavítum, og er eitt þeirra svo lenskt, að notendaviðmótið er meira að segja á Íslensku!  Svo er alltaf hægt að spila lottó, getraunir, lengjuna, HHÍ, SÍBS o.s.frv. Ef þú átt klink aflögu, hentu því þá í spilakassann!

Það er tími fyrir þjóðfélagið að hætta með allar þessar fornfálegu löggjafir sem að gera ekkert annað en að minna okkur á að undir niðri er ríkið að reyna að halda í stóra-bróðurs hlutverkið sitt. Er það ekki annars frekar gamaldags að ríkið stjórni áfengisneyslu landsmanna ?

 


mbl.is Pókermót stöðvað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Áddni
Áddni
Fulltrúi ómálefnalegrar umræðu og erindreki niðurrifsáróðurs  af illkvittnasta tagi!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband